Steinunn nýja komin til Hafnar

28.11.2019

Steinunn SF-10, nýr togbátur í skipastól Skinneyjar-Þinganess, kom til Hafnar í Hornafirði 27. nóvember. 

Skipið er smíðað í skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Noregi. 

Fjöl­menni tók á móti skip­inu og á eftir bauðst fólki að koma um borð og skoða hið nýja og glæsilega skip Skinneyjar- Þinganess hf.

Steinunn er sjötta skipið er kemur til landsins í 7 skipa raðsmíða verkefni og er þá eitt skip ókomið til landsins en það er Þinganes sem áætlað er að komi til Hornafjarðar 21. desember. 

Steinunn er 29 metra langt og 12 metra breitt togveiðiskip. Íbúðir eru fyrir 13 manns og lestin tekur 80 tonn af fiski. Skipstjóri er Erling Erlingsson og yfirvélstjóri Þorgils Snorrason.

Sveitarfélagið óskar Skinney-Þinganes til hamingju með bæði skipin. 

 

Ólöf Ingunn Björnsdóttir staðgengill bæjarstjóra færði Ásgeiri Gunnarssyni útgerðarstjóra árnaðaróskir frá sveitarfélaginu.