Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn!
Stóri plokkdagurinn verður haldinn hátíðlegur um land allt sunnudaginn 26. apríl og mun Sveitarfélagið Hornafjörður að sjálfsögðu taka þátt.
Á stóra plokkdeginum sameinast fólk í að ganga um umhverfi sitt og tína upp plast, pappa og annað rusl sem fallið hefur til og liggur á víðavangi eftir vindasaman vetur. Dagurinn markar upphaf plokk tímabilsins og er hugsaður sem vitundavakning og hvatning til okkar allra um að huga að umhverfi okkar og neyslu.
Nokkuð
ber á rusli í þéttbýli sveitarfélagsins og áríðandi að koma því sem fyrst úr
umhverfinu áður en það hverfur á haf út eða grefst í náttúruna. Í þeim tilgangi
verður sorpílátum komið upp á nokkrum stöðum á Höfn og í Nesjahverfi undir
plokkaðan úrgang. Staðsetningu ílátanna má finna á kortum neðst í þessari frétt
en ílátin verða aðgengileg frá miðvikudeginum 22. apríl fram að 2. maí.
Þeir
sem vilja láta gott af sér leiða með því að plokka geta fengið lánaðar
plokktangir og glæra ruslapoka við sundlaug sveitarfélagsins, á meðan birgðir
endast. Plokkarar þurfa því aðeins að útvega sér hanska!
Almennt er litið á plokkaðan úrgang sem blandaðan úrgang sem fer í urðun. Sé úrgangur hins vegar tiltölulega hreinn er hægt að skila honum á flokkunarbarinn við söfnunarstöðina til endurvinnslu.
Þá má einnig vekja athygli á heimasíðu Stóra plokkdagsins, plokk.is, en þar má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um plokk. Þá má jafnframt nefna Facebook síðu Plokk á Íslandi sem er hópur áhugafólks um útivist og að halda umhverfinu ruslfríu. Hópurinn telur tæplega átta þúsund manns sem er kominn á fullt við að plokka í sínu nærumhverfi.
Frítt er í sund á Höfn þann 26. apríl fyrir alla sem taka þátt! Ekkert er skemmtilegra en að njóta góða veðursins og fallegu náttúrunnar með því að tína rusl og nýta sér síðan frían sundaðgang! Allt sem þú þarft að gera er að sýna mynd af því sem þú tíndir.
Margar hendur vinna létt verk og því skiptir framtak hvers og eins heilmiklu máli fyrir umhverfi og samfélag.
Staðsetningar sorpíláta undir plokkaðan úrgang eru hér að neðan:


