Sumarfrístund 2026
Mánudaginn 8. júní fer sumarstarf með börnum á fullan skrið í sveitarfélaginu. Upplýsingar um dagskrá sumarstarfsins hefur verið send foreldrum í tölvupósti en hana má einnig nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins. Fjölbreytt námskeið verða í boði og skrá þarf börnin á þau inn á Abler. Þar er einnig hægt að skrá börnin í fjölbreytt íþróttastarf.
Í sumar verður boðið upp á skólagarða, kofabyggð og fjölbreytta útiveru inn í landi í tengslum við námskeiðið „Villingarnir“ og í samstarfi við Þrykkjuna.
Kofabyggðin og skólagarðarnir eru á opnu svæði sem leitað er að skemmtilegu nafni á og eru allar hugmyndir vel þegnar og hægt að koma hugmyndum á framfæri hér. Þetta opna svæði er sameign okkar Hornfirðinga og mikilvægt að við hjálpumst að við að ganga vel um það og virða hús og garða annarra á svæðinu.
Skráning á öll námskeið fer fram í gegnum Abler og opnar fyrir skráningu á hádegi 2. júní. Hægt er að nýta frístundastyrkinn á námskeiðin.
Sindra Ablerinn UMF Sindri | Námskeið | Abler o
Hornafjarðaablerinn Sveitarfélagið Hornafjörður | Námskeið | Abler
Hér er hægt að sjá hvað er í boði fyrir hvern aldur og eru foreldrar hvattir til að skrá börn sín tímanlega. Athugið að fjöldatakmarkanir eru á sum námskeiðin.
Við hlökkum til sumarsins
Starfsfólk sumarfrístundar

