Sundlaugin opin til 21:30 á þriðjudögum í febrúar

30.1.2026

Á Barna- og ungmennaþingi í nóvember óskuðu ungmenni í sveitarfélaginu eftir fleiri stöðum og tækifærum til samveru. Af því tilefni ætlar starfsfólk Sundlaugar Hafnar að vera með tilraunaverkefni í febrúar og lengja opnunartíma sundlaugarinnar á þriðjudögum til 21:30. Hornfirðingar, grípum tækifærið og hittumst í sundlauginni.