Sveitarfélagið auglýsir eftir ungmennum í vinnuskólann sumarið 2024

11.4.2024

Ungmenni sem fædd eru 2008 –2011 geta sótt um vinnu í vinnuskólanum.

Boðið er upp á vinnu fyrir 2008 –2010 árgangana frá kl. 9-12 og eða kl. 13-16, en 2011 árganginn frá kl. 9 –12.
Vinnuskólinn stendur í u.þ.b. 8 vikur. Hefst 4. júní og lýkur 26. júlí.
Til að sækja um vinnu er best að fara inn á íbúagátt, fara inn á umsóknir og sækja um vinnu undir vinnuskólinn. Mikilvægt er að skrá allar upplýsingar.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á emilmoravek@hornafjordur.is þar sem fram koma upplýsingar um nafn ungmennis, kennitala, heimilisfang, nafn foreldra, símanúmer, tölvupóstfang, bankaupplýsingar barns og hvenær viðkomandi vill byrja að vinna (tímabil) og og hvaða vinnutíma er óskað eftir.
Við hvetjum alla sem hafa aldur til að sækja um í vinnuskólanum.

Umsóknarfrestur er til 29. maí n.k.
Allar frekari upplýsingum gefur Emil Örn Morávek, s. 470 8028 emilmoravek@hornafjordur.is