Sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026
Í Sveitarfélaginu Hornafirði verður kosið á fjórum stöðum og hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um kjörfundi:

Kjósendur eru beðnir um að hafa með skilríki á kjörstað. Yfirkjörstjórn mun hafa aðsetur í Heppuskóla á kjördag og þar verða einnig atkvæði talin. Gert er ráð fyrir að talning atkvæða hefst um kl 21:00 á kjördegi. Úrslit kosninganna munu svo liggja fyrir síðar um kvöldið.Ef það eru einhverjir sem vita að þeir eru ekki heima á kjördag er þeim bent á að hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt. Upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma sýslumanna er að finna undir hverju embætti fyrir sig.
Athugið að íbúar í Lóni og Nesjum greiða atkvæði í Kjördeild V Höfn
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvar þeirra kjörstaður og kjördeild er áður en haldið er á kjörstað. Upplýsingar um það má nálgast á vef Þjóðskrár.
Frekari upplýsingar er varða kosningar má finna á Sveitarstjórnarkosningar 2026 | Ísland.is.
Yfirkjörstjórn:
Vignir Júlíusson
Hjördís Skírnisdóttir
Kristján Sigurður Guðnason


