Sýn íbúa á umhverfis- og skipulagsmál sveitarfélagsin

17.5.2023

Í framhaldi af birtingu verkefnislýsingar fyrir endurskoðun aðalskipulags hefur nú verið birt vefkönnun þar sem leitað er til íbúa eftir sjónarmiðum þeirra og hugmyndum um viðfangsefni endurskoðunarinnar.

Á hverju þarf að taka við endurskoðunina? Hvaða áskoranir og tækifæri sérð þú í umhverfis- og skipulagsmálum sveitarfélagsins? Hvaða áherslur á að leggja í þessum málum næstu 12-15 árin?

Svör við könnuninni verða höfð til hliðsjónar við mótun stefnu og skipulags í þéttbýli og dreifbýli.

Vefkönnunina má finna á íslensku, ensku og pólsku.