Þjóðgarður á miðhálendinu

12.8.2019

Kynningarfundur þverpólitískrar nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu verður haldin í Nýheimum 21. ágúst.

Þverpólitísk nefnd sem vinnur að tillögum um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu boðar til opins fundar um vinnu nefndarinnar.

Á fundinum verður farið yfir verkefni nefndarinnar fram til þessa, ásamt því að ræða lokaskrefin í vinnu hennar.

Nefndin mun skila lokaskýrslu með tillögum sínum til umhverfis- og auðlindaráðherra í september næstkomandi.

Fundurinn er öllum opinn og fer fram í Nýheimum á Höfn 21. ágúst næstkomandi.

Fundurinn hefst kl. 20:00 og áætlað er að honum ljúki um 21:30.