• Kindur1918

Til fjallskilastjóra sveitarfélaga – tilkynning frá mast.

21.4.2026

Athygli ykkar er vakin á því að komin er ný reglugerð um flutning sauð- og geitfjár yfir varnarlínur ? nr. 253/2026.

Athygli ykkar er vakin á 5.gr reglugerðarinnar sem hljóðar svo: 5. gr.

Tilkynningarskyldur flutningur fjár yfir varnarlínur.
Þrátt fyrir ákvæði í 1. ml. 1. mgr. 3. gr. er heimilt að flytja fé yfir varnarlínur án sérstaks leyfis Matvælastofnunar að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:

1. Að um sé að ræða flutning fjár sem farið hefur sjálft yfir varnarlínu til baka til síns heima beri það V/x eða MV/x arfgerðir (x er ekki VRQ):

a) Skilyrði er að varnarhólfið sem sauðfé hefur farið yfir í sé með jafna eða betri sjúkdómastöðu með tilliti til riðuveiki en það varnarhólf sem hún á sinn uppruna í, nema um sé að ræða sauðfé með V/V arfgerð, þó ekki fé sem fellur undir ákvæði 6. gr.

b) Skilyrði er að varnarhólfið sem sauðfé hefur farið í sé með jafna eða betri sjúkdómastöðu undangengin 10 ár með tilliti til garnaveiki.

2. Að um sé að ræða fé með V/V arfgerð, þó ekki fé sem fellur undir ákvæði 6. gr.

3. Að um sé að ræða flutning fjár á skráða kynbótastöð.

Móttakandi fjár sem flutt er yfir varnarlínu með heimild í þessari grein skal tilkynna Matvælastofnun gegnum þjónustugátt um flutninginn innan tveggja sólarhringa frá því flutningur fór fram.

Liður 1 fjallar um svokallaða línubrjóta. Þetta þýðir að í hvert sinn sem línubrjótar koma fram við fjallskil eða réttir skal hafa samband við eigendur og þeim gert kleift að sýna fram á hvort viðkomandi dýr bera verndandi eða mögulega verndandi arfgerðir gegn riðu. Beri dýrin V eða MV arfgerðir (ekki VRQ) er heimilt fyrir eigendur að sækja dýrin og flytja til baka yfir varnarlínu til síns heima.

Flutningar og sjúkdómavarnir | Matvælastofnun

Varnarholf