• Rotthro

Tilkynning um skráningu rotþróa

7.4.2026

Samkvæmt gjaldskrá fráveitu Sveitarfélagsins Hornafjarðar sér sveitarfélagið um tæmingu rotþróa að jafnaði þriðja hvert ár. 

Greitt er árlegt rotþróargjald fyrir íbúðarhús, sumarhús og frístundahús sem eru með eigin fráveitu eða sem eru ekki tengd fráveitukerfi sveitarfélagsins, sbr. 5. mgr. 9. gr. samþykktar um fráveitu í Sveitarfélaginu Hornafirði nr. 669/2016.

Til að tryggja rétta þjónustu og innheimtu gjaldsins eru fasteignaeigendur sem falla undir þjónustuna beðnir um að yfirfara skrá yfir rotþrær á https://www.hornafjordur.is/thjonusta/umhverfid/skraning-rotthroa/ og ganga úr skugga um að upplýsingar séu réttar.

Vinsamlegast athugið sérstaklega:

  • Stærð rotþróar – ef upplýsingar vantar eða eru rangar.
  • Sameiginlegar rotþrær – ef rotþró er sameiginleg fyrir fleiri en eina fasteign.
  • Vantar fasteign á listann – ef rotþró er ekki skráð.

Ef gera þarf breytingar er vinsamlegast haft samband við sveitarfélagið fyrir lok apríl.

Hafa má samband við sveitarfélagið

Sími: 470 8000
Netfang: xiaoling@hornafjordur.is með efnislínunni „Skráning rotþróa“

Ef tilkynning berst eftir lok frestsins er engu að síður hægt að hafa samband og við aðstoðum við breytingar.