Tilkynning um sorphirðu – mikilvægi aðgengis að tunnum
Vegna slæmrar færðar undanfarið biðjum við íbúa um að aðstoða við að tryggja að sorphirða geti farið fram eins og best verður á kosið.
Höfn & Nes (þéttbýli)
Sorphirða á Höfn er áætluð á mánudag og hefst kl. 07:00 innst á Silfurbraut.
Við biðjum íbúa um að:
· moka frá tunnum
· tryggja gott aðgengi að þeim
· færa tunnur nær götu ef þörf er á
Þetta auðveldar tæmingu á almennu sorpi og lífrænum úrgangi.
Dreifbýli
Vegna erfiðs veðurs og snjókomu hefur ekki tekist að sinna stórum hluta dreifbýlis eins og áætlað var í þessari viku. Aðeins hefur tekist að tæma svæði næst Höfn.
Íbúar í dreifbýli eru því beðnir um að:
· tryggja gott aðgengi að tunnum
· moka frá snjó og öðrum hindrunum
· staðsetja tunnur þannig að sorphirðubílar komist auðveldlega að þeim
Sorphirða heldur áfram eftir því sem aðstæður leyfa.
Takk fyrir skilning og samstarf.

