• Sveitarfélagið Hornafjörður

Tilkynning vegna álagningar fasteignagjalda

30.1.2026

Sveitarfélagið Hornafjörður upplýsir að því miður næst ekki að ljúka álagningu fasteignagjalda í tæka tíð fyrir mánaðarmótin.

Unnið er hörðum höndum að því að álagningarseðlar verði tilbúnir og sendir út í næstu viku. Fyrsti eindagi verður áfram 30 dögum eftir gjalddaga og fyrsta gjalddaga seinkar sem nemur seinkun álagningar.

Sveitarfélagið biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.