• Sveitarfélagið Hornafjörður

Tillaga að Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040

14.4.2026

Tillaga að nýju aðalskipulagi fyrir sveitarfélagið og tilheyrandi umhverfismatsskýrsla, hefur verið birt í Skipulagsgátt í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Athugasemdafrestur er til og með 12. júní 2026. Að frestinum liðnum verður tekin afstaða til athugasemda sem borist hafa og þess hvort gera skuli breytingar á tillögunni. Afgreiðsla og umsögn bæjarstjórnar um athugasemdir verður send þeim aðilum sem gerðu athugasemdir og niðurstaða bæjarstjórnar verður auglýst. Sjá nánar um aðalskipulagsverkefnið á aðalskipulagsvef.