Tímabundin lokum, breytingar og spennandi tímar fram undan á Svavarssafni

5.5.2026

Í kjölfar sýningarloka Nytja hefur listasafni Svavars Guðnasonar nú hefur verið lokað og verður lokað fram á haust. Umfangsmiklar framkvæmdir eru nú farnar af stað á jarðhæð ráðhússins sem hýsir m.a. sýningar- og varðveislurými safnsins.

Engar stórframkvæmdir eiga sér stað í sýningarsölum okkar en þær ná þó meðal annars til þriggja geymslu- og varðveislurýma safnsins.

Samhliða framkvæmdunum er unnið að bættri aðstöðu varðveislurýma safnkostsins. Vélsmiðjan FOSS vinnur að smíði sérhannaðar, útdraganlegar einingar sem henta varðveislurýminu vel og gerir okkur kleift að varðveita listaverkin á öruggari og faglegri hátt en áður. Með þessum og fjölbreyttum öðrum breytingum er stigið mikilvægt skref í að tryggja langtímavernd safnkostsins sem og styrkja safnið í miðlunarhlutverki sínu.

Á sama tíma hafa orðið breytingar í starfsmannahaldi safnsins og því má segja að fram undan séu nýir tímar og spennandi tækifæri í starfsemi þess. Auglýst hefur nú verið eftir sérfræðingi til starfa á safnið en viðkomandi mun leiða faglegt starf safnsins og daglega umsjón þess. Undir hatti Menningarmiðstöðvarinnar eru ólík söfn og deildir en að jafnaði er einn sérfræðingur á hverju sviði en saman myndar starfsmannahópurinn þverfaglegt teymi sem tekst á við fjölbreyttar áskoranir í sameiningu. Umsóknarfrestur er 18. maí en Á ÞESSUM HLEKK er hægt að nálgast umsóknarform og sækja um starfið.

Atvinnuaugl_12-Eystrahorn-2

Þrátt fyrir lokun listasafnsins í sumar er nóg um að vera hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar.

Sumarferðir barna frá bókasafninu alla þriðjudaga verður fastur liður hjá okkur í sumar, eins og mörg undanfarin ár og þá eru aðrir fastir liðir bókasafnsins enn í fullu fjöri, foreldramorgnar, bókaklúbbur, föndurstundir o.fl.

Gamlabúð iðar einnig af lífi og þar stendur yfir byggðasafnssýningin Út úr geymslunni, þar sem íbúar hafa haft áhrif á val muna til sýningar. Þar er því sannkallað “brot af því besta“ úr safnkostinum til sýnis um þessar mundir.

Einnig má í Gömlubúð sjá handverkssýningu Margotar Gamm sem er lifandi vitnisburður um hæfileika hennar og fjölbreytta tækni í listsköpun. Margir Hornfirðingar muna eftir Margot úr textílkennslu í grunnskólanum og er sýningin því bæði persónuleg og menningarlega dýrmæt. Börn Margotar komu að uppsetningu sýningarinnra í samstarfi við listasafnið og eru öll verk sýningarinnar í eigu fjölskyldunnar.

Fram undan er svo opnun Kvískerjasýningarinnar, sem nú er í mótun og mun opna í mars 2027. Áhugasamir geta kynnt sér efnið með því að hlusta á Hlaðvarp Gömlubúðar, þar sem birt hafa verið viðtöl við aðstandendur systkinanna á Kvískerjum sem veita einstaka innsýn í líf þeirra og störf.