Tölfræði varðandi erlenda íbúa í Sveitarfélaginu Hornafirði
Hér má sjá tölur sem teknar voru saman þann 21. Maí sl., en er heildarfjöldi íbúa með erlent ríkisfang í Sveitarfélaginu Hornafirði nú 34,58%, eða 836 manns af 2650. Þá er vert að benda á að þessi prósenta er með öllum líkindum töluvert lægri, þar sem margir einstaklingar sem koma hingað að vinna til styttri tíma, skrá sig ekki úr landi þegar þau snúa aftur til síns heimalands. Hlutfall á landsvísu er 20%.
Hlutfall erlendra hefur hækkað um rúm 3%. Mesta breytingin á sér stað í póstnúmerinu 781 þar sem hlutfall erlendra hækka um tæplega 8%.
Pólverjar eru fjölmennasti hópurinn í öllum þremur póstnúmerum og er heildafjöldi þeirra 312 manns. Næstfjölmennasta ríkisfangið í sveitarfélaginu öllu er Tékkland, en þó er það ekki næstfjölmennasta ríkisfangið í neinu póstnúmeranna. Í 780 er það Króatía, í 781 er það Spánn og í 785 er það Rúmenía.
Í Sveitarfélaginu Hornafirði býr fólk frá 48 löndum og saman mynda íbúarnir fjölbreytt og líflegt samfélag þar sem ólík sjónarhorn, reynsla og tungumál fléttast saman og styrkja heildina. Þessi fjölbreytileiki skiptir máli og við ættum að nýta okkur hann því hann eykur skilning, víkkar sjóndeildarhringinn og gerir samfélagið sterkara og betra fyrir okkur öll.
Mörg þjóðarbrot, eitt samfélag!
Anna Birna Elvarsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar- og gæðamála, tók tölfræðina saman.
Fólk | Sveitarfélagið allt | Póstnr. 780 | Póstnr. 781 | Póstnr. 785 |
Íslensk ríkisföng | 1822 | 1423 | 316 | 83 |
Erlend ríkisföng | 963 | 480 | 279 | 204 |
Samtals | 2785 | 1903 | 595 | 287 |
Íslensk ríkisföng % | 65,42% | 74,78% | 53,11% | 28,92% |
Erlend ríkisföng % | 34,58% | 25,22% | 46,89% | 71,08% |