• Picture1_1778669925339

Trjáklippingar

13.5.2026

Nú er komið sumar og allur gróður er í fullum undirbúningi við að breiða úr sér sem gerir lífið svo fallegt. Stundum breiðir gróður aðeins of mikið úr sér og getur teygt sig yfir svæði þar sem hann er ekki alveg velkominn eins og út á og yfir gangstíga eða í næsta garð. Þegar trén teygja sig yfir gangstíga þá getur það stundum verið íbúum til trafala og þeir geta átt erfitt með að komast leiðar sinnar. Íbúar eru því hvattir til þess að nýta góða veðrið og klippa þau tré við heimili sín sem teygja sig út á göngustíga.