Umhvefisviðurkenningar 2022 - framlengdur frestur

24.10.2022

Umhverfis-og skipulagsnefnd auglýsir á ný eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2022.

Auglýst er eftir tilnefningum á einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum, fyrirtækjum, lóðum og lögbýlum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem hafa með athöfnum sínum verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúruna og umhverfið að eðlilegum þætti í hversdagslífi sínu eða hafa á annan hátt lagt sitt af mörkum til verndunar á náttúru og umhverfi.

Frestur til að skila inn tilnefningum er framlengdur til 14. nóvember.
Hægt er að senda tilnefningar á netfangið johannai@hornafjordur.is eða í afgreiðslu ráðhússins við Hafnarbraut 27.

Stefán Aspar Stefánsson
Verkefnastjóri umhverfismála