Umhverfis viðurkenningar 2020

8.7.2020

Umhverfis- og skipulagsnefnd auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenningar 2020.

Auglýst er eftir tilnefningum á einstaklingum, félagasamstökum, stofnunum, fyrirtækjum og lögbýlum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem hafa með athöfnum sínum verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúruna og umhverfið að eðlilegum þætti í störfum sínum og rekstri eða hafa á annan hátt lagt mikið af mörkum til verndunar náttúru og umhverfis.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 17. ágúst, þeim skal skila í Ráðhúsið, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði eða á netfangið anna(hjá)hornafjordur.is.

Fyrir hönd umhverfis- og skipulagsnefndar
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
umhverfisfulltrúi