Umhverfisviðurkenningar 2023

5.9.2023

Umhverfis-og skipulagsnefnd auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenningar 2023

Auglýst er eftir tilnefningum á einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum, fyrirtækjum, lóðum og lögbýlum í Sveitarfélaginu Hornafirði sem hafa með athöfnum sínum verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúruna og umhverfið að eðlilegum þætti í hversdagslífi sínu, starfi og rekstri eða hafa á annan hátt lagt mikið af mörkum til verndunar á náttúru og umhverfi.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 24. september, þeim skal skila í afgreiðslu ráðhússins við Hafnarbraut 27 eða á netfangið afgreidsla@hornafjordur.is