Umsóknir í Uppbyggingasjóð Suðurlads

20.2.2023

Opið er fyrir umsóknir í Uppbyggingasjóð Suðurlands 2023 í fyrri úthlutun.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, óska eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Suðurlands, um er að ræða vorúthlutun 2023. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar, og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024. Umsækjendum er því bent á að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur, markmið og mat á umsóknum sem eru aðgengilegar hér. Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem þýðir að vel mótuð verkefni, skýrar og góðar umsóknir, eru líklegri til að hljóta styrki.

Umsóknir fyrir verkefni í sjóðinn geta uppfyllt eina eða fleiri áherslur sjóðsins en skilyrði er að öll verkefni uppfylli að lágmarki markmið sjóðsins í þeim flokki sem það tilheyrir, menningu eða atvinnu- og nýsköpun. Ráðgjafar SASS eru staðsettir víða á Suðurlandi og aðstoða við mótun verkefna og veita ráðgjöf. Við bendum einnig á ráðgjafasíðu SASS, þar sem er að finna leiðbeiningar um umsóknarskrif.

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum umsóknarvef sjóðsins. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum og þarf að hafa lögheimili á Suðurlandi. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einka aðgangi verkefnastjóra. Athugið að ekki er hægt að breyta kennitölu og nafni umsækjanda eftir að umsókn hefur verið stofnuð.

Við bendum áhugasömum á að fylgja Uppbyggingarsjóði á samfélagsmiðlum. Sjóðinn má bæði finna á Facebook og Instagram.

Kynningarfundur um sjóðinn var haldinn á dögunum og má finna upptökur af fundinum hér.

Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 1. mars 2023.