Umsóknir um styrki Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2022

10.12.2021

Atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknarsjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem efla byggð eða atvinnu í sveitarfélaginu án þess að skekkja samkeppnisstöðu starfandi fyrirtækja á svæðinu. Sjóðnum er ætlað að veita styrki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og rannsókna.

Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrki til sjóðsins. Atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar hefur umsjón með sjóðnum.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá undirritaðri, ardis@hornafjordur.is, og einnig má nálgast reglur sjóðsins á heimasíðu sveitarfélagsins. Allar umsóknir eru metnar út frá skilgreindum matsramma. Hér má nálgast matsramma fyrir rannsóknarþátt og hér má nálgast matsramma fyrir atvinnuþátt.

Umsóknir eru aðgengilegar á íbúagátt sveitarfélagsins http://ibuagatt.hornafjordur.is, þar er hægt að fylla út eyðublöð og hlaða inn viðhengjum með umsókn.

Umsóknarfrestur er til 11. janúar 2022.

Árdís Erna Halldórsdóttir, atvinnu- og ferðamálafulltrúi