• Atv-og-rannsoknasjodur-augl-fyrir-2024

Umsóknir um styrki Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2024

28.11.2023

Atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknarsjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem efla byggð eða atvinnu í sveitarfélaginu án þess að skekkja samkeppnisstöðu starfandi fyrirtækja á svæðinu. Sjóðnum er ætlað að veita styrki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og rannsókna.

Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrki til sjóðsins. Atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar hefur umsjón með sjóðnum.

Nánari upplýsingar eru veittar í ráðhúsi, Hafnarbraut 27 Höfn eða á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hornafjordur.is undir stjórnsýsla/reglur.

Umsóknir eru aðgengilegar á íbúagátt sveitarfélagsins http://ibuagatt.hornafjordur.is, þar er hægt að fylla út eyðublöð og hlaða inn viðhengjum með umsókn.

Umsóknarfrestur er til 11. janúar 2024.

Árdís Erna Halldórsdóttir
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi