Undankeppni Suðurlands fyrir Söngvakeppni Samfésar
U.S.S.S 2026 var haldið hátíðlega á Flúðum í Hrunamannahreppi þetta árið og tók Þrykkjan að sjálfsögðu þátt eins og reynt er að gera öll ár.
Í undirbúningi spratt upp stelpu hljómsveitin Spírall sem er skipuð af 6 ungmennum á aldrinum 14-16 ára úr Þrykkjunni, vel metnaðarfullar stelpur hér á ferð. Það eru þær Björg Sveinsdóttir, Björg Kristjánsdóttir, Freyja Dís Tjörvadóttir, Emilía Ósk Jóhannsdóttir, Bryndís Jóna Valdimarsdóttir og Bryndísi Björk Hólmarsdóttir (sem reyndar komst ekki í þessa undankeppni sökum utanlandsferðar en er vissulega í bandinu og má segja að hún sé límið í henni)
Ég (Erlendur) ferðaðist með stelpunum okkar frá Höfn og á Flúðir daginn fyrir og var þeirra persónulegi bílstjóri og umboðsmaður í 2 daga. 10 Atriði frá bæjum um allt Suðurland, Selfoss, Hellu, Hvolsvöll, Vestmanneyjum, Flúðum ooog ég gæti lengi talið áfram... og við frá Höfn kepptum til sigurs í þessari undankeppni til að komast áfram á aðalkeppnina, Söngvakeppni Samfésar sem haldin verður glæsilega í Laugardalshöll 9. maí næstkomandi. Keppt er þar fyrir framan þúsundir ungmenna og er aðalkeppninni einnig streymt í sjónvarpinu á RÚV. Svo það var mikið í húfi og stórt tækifæri fyrir ungmennin okkar!

Hljómsveitin Spírall flutti lagið Creep - með Radiohead í keppninni og tókst vel til. Svo vel til að þær sigruðu keppnina og nældu sér í sæti á aðalkeppninni í Laugardalshöll 9. maí næstkomandi.
Svo framundan eru stífar æfingar fyrir stóra sviðið 9.Maí og ég mæli með fyrir alla sem hafa minnstan áhuga á tónlist, girl bands og öflugu ungmennunum okkar að fylgjast með og hvetja þær áfram."
Erlendur Rafnkell Svansson

