Upplýsingamiðstöð í Gömlubúð

4.7.2023

Gamlabúð hefur verið opnuð að nýju 

Gamlabúð hefur verið opnuð að nýju og mun Menningarmiðstöð Hornafjarðar starfrækja þar bæði upplýsingamiðstöð og sýningu í sumar. Starfsemin er opin frá kl. 9-17 alla virka daga og er hægt að ná í starfsfólk í síma 478-1500 og í netfangið gamlabud@hornafjordur.is

Um helgar verður ferðamönnum unnt að leita upplýsinga í Svavarssafni á milli kl. 13-17.

Ferðaþjónustuaðilum er velkomið að koma með kynningarefni til ferðamanna í Gömlubúð, og þar er einnig hægt að nálgast bæklinginn, The Vatnajökull Region, sem nýtist ferðaþjónustuaðilum vel til að kynna okkar svæði.

Gleðilegt ferðasumar!