Útskrift frá FAS næsta laugardag

24.5.2017

Laugardaginn 27. maí næst komandi verða útskrifaðir stúdentar og nemendur af framhaldsskólabraut og vélstjórnarbraut frá FAS. 

Athöfnin verður í Nýheimum og hefst klukkan 14:00. Þeir sem eiga útskriftarafmæli eru sérstaklega velkomnir.

Allir eru velkomnir á athöfnina á meðan húsrúm leyfir.