Varptími fugla er hafinn!

13.5.2022

Hundar og kettir geta haft neikvæð áhrif á fuglavarp í nágrenni við mannabústaði og því er ábyrgð eigenda þeirra töluverð.

Í sveitarfélaginu njótum við þeirra forréttinda að búa í nágrenni við miklar náttúruperlur þar sem fjölbreytt dýralíf þrífst. Á þessum tíma árs, þegar varptíminn er genginn í garð, eru fuglar sérstaklega útsettir fyrir árásum rándýra. 

Kettir eru öflug og afkastamikil rándýr sem geta hoggið stór skörð í fuglastofna sem verpa í nágrenni við mannabústaði. Flestir kettir sveitarfélagsins búa á Höfn og er þéttbýlið umkringt svæðum sem eru fuglalífi mikilvæg.

Skv. 10. mgr. 8. gr. samþykktar sveitarfélagsins um kattahald… ber kattaeigendum og umráðamönnum að taka tillit til fuglalífs á varptíma, eftir því sem tök eru á, m.a. með því að hengja bjöllur á hálsólar katta og halda þeim innandyra á nóttunni.

Kettir eru eins misjafnir og þeir eru margir og sumir afkastameiri veiðiklær en aðrir. Það er ekki alltaf augljóst hvaða kettir eru duglegir við veiðar og ekki við þá að sakast að fylgja sínum eðlishvötum. Það er hins vegar kattaeigenda að sýna samfélagslega ábyrgð með að halda köttum sínum sem mest inni yfir varptímann.

Bjöllur og kragar hafa ágætis fælingarmátt en kettir með marglitan kraga drepaKisa_med_kraga allt að 19 sinnum færri fugla en kettir sem eru ekki með kraga. Það hjálpar ófleygum ungum þó takmarkað að sjá eða heyra í dauðanum koma og því er best að halda köttum innandyra yfir varptímann. Ef ekki er unnt að halda þeim alfarið innandyra þá er best að miða við frá kl. 17 til kl. 9 næsta morgun.

Þá vil ég einnig benda á að skv. 9. mgr. 8. gr. sömu samþykktar ber eiganda eða umráðamanni kattar að leita leiða til að koma í veg fyrir að dýrið valdi nágrönnum eða öðrum ítrekuðu ónæði, óþrifum eða tjóni. Dæmi um slíkt ónæði er þegar köttur drepur fugl í garði einhvers sem nýtur þess að hafa fugla í garðinum.

Ég vil því hvetja kattaeigendur til að sýna tillitssemi, gerast ábyrga gæludýraeigendur og leggja sig fram við að lágmarka þann skaða sem hlýst af lausagöngu katta í þéttbýli.

Að lokum vil ég minna hundaeigendur á að lausaganga hunda er óheimil innan þéttbýlismarka. Hins vegar er heimilt að sleppa hundum utan þéttbýlismarka undir eftirliti umsjónarmanns. Á þessum tíma er mikilvægt að gæta þess að hundar séu ekki á ferð um varpsvæði og því hvet ég hundaeigendur til að sleppa ekki hundum sínum lausum á slíkum svæðum.

Verkefnastjóri umhverfismála