Velferðarsvið Hornafjarðar óskar eftir húsbúnaði vegna móttöku flóttafólks
Kæru íbúar Hornafjarðar,
Velferðarsvið Hornafjarðar er nú að undirbúa móttöku flóttafólks en sveitarfélagið er eitt af móttökusveitarfélögum í samræmdri móttöku flóttafólks. Tilgangur samræmdrar móttöku er að auðvelda einstaklingum og fjölskyldum að taka sín fyrstu skref á Íslandi og styrkja þau til að nýta styrkleika sína við að koma sér fyrir í nýju samfélagi. Ennfremur að tryggja samfellu í þjónustu og samræma aðkomu allra þjónustuaðila.
Við vinnum nú að því að standsetja íbúð fyrir hjón með eitt 7 ára gamalt barn og leitum eftir stuðningi samfélagsins við að gera heimilið þeirra hlýlegt og öruggt.
Við þörfnumst sérstaklega eftirfarandi húsbúnaðar og þarfahluta í góðu ásigkomulagi:
- - Rúm (eitt einbreitt rúm), ásamt sængum, koddum, sængurverum og lökum
- - Náttborð (tvö eins og eitt stakt)
- - Kommóða
- - Hirsla fyrir leikföng
- - Leikföng sem henta 7 ára dreng
- - Barnabækur á íslensku á borð við fyrstu orðin
- - Sófi og sófaborð
- - Sjónvarpsskenkur
- - Heimilistæki á borð við ryksugu, kaffivél, ketil, brauðrist, potta, hnífapör osfrv.
- - Ísskápur
- - Þvottavél
- - Þvottagrind
Ef þú vilt leggja eitthvað til eða bjóða fram aðstoð vinsamlegast hafðu samband við Sædísi á saedisosp@hornafjordur.is málstjóra í samræmdri móttöku flóttafólks eða í síma 470-8011 (móttaka velferðarsviðs).
Takk fyrir stuðninginn, saman getum við skapað öruggt og hlýlegt heimili fyrir nýja íbúa okkar.
Með vinsemd,
Sædís Ösp Valdemarsdóttir, umsjónarfélagsráðgjafi hjá velferðarsviði Hornafjarðar.

