Vika 17 á almenningingsbókasöfnum
Vika 17 er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á almenningsbókasöfnum, en hún fer fram í 17. viku ársins. Þessi vikutalning segir okkur Íslendingum yfirleitt ekki margt enda tölum við alla jafna um dagsetningar en ekki vikunúmer.
Það ætti því ekki að koma þeim sem til þekkja á óvart að verkefnið á uppruna sinn að rekja til Danmerkur en í dag taka hátt í 200 bókasöfn frá 10 mismunandi löndum þátt.
Vikan sem umræðir ber dagsetningar 20.-25.apríl 2026 er því um það bil að hefjast!
Heimsmarkmiðin eru mörg og fjölbreytt. Þau eru samþætt og órjúfanleg og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; hinnar efnahagslegu, félagslegu og umhverfislegu.
Í tilefni vikunnar eru ýmsir viðburðir tengdir heimsmarkmiðunum á dagskrá bókasafna vítt og breytt um landið, til að mynda skiptimarkaðir, plokkbingó og smiðjur.
Við hér á Höfn látum okkar ekki eftir liggja og bjóðum upp á allskonar skemmtilega afþreyingu á bókasafninu í tilefni Viku 17. Sem dæmi má nefna Plokkbingó, þar sem við hvetjum börn og fullorðna til að fara út og finna rusl af ákveðinni tegund og reynum þannig að vekja áhuga barna og fullorðinna á því að hreinsa upp rusl í kringum sig. Þá munum við endurnýta gamlar og ónýtar bækur með því að bjóða upp á föndur þar sem við nýtum blaðsíður bókanna. Einnig drögum við fram fræsafnið okkar þar sem gestum safnsins er boðið að fá gefins fræ sem aðrir gestir hafa ekki not fyrir og hafa skilið eftir á safninu.
Nú sem ávallt hlökkum við til að taka á móti ykkur á bókasafni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Opnunartími bókasafnsins er eftirfarandi en minnum á að safnið verður lokað á fimmtudaginn þegar við fögnum sumardageginum fyrsta:
- Mánudagur – fimmtudagur kl.10-17
- Föstudagur kl.11-15
- Laugardagur kl.11-15
Starfsfólk Bókasafnsins

