• Sumarmynd

Vinnuskóli og sumarstörf ungmenna 2026

20.5.2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vinnuskólann fyrir börn fædd 2010-2013 og sumarstörf ungmenna fædd 2006-2009

Umsóknarform er inn á íbúðagáttinni: https://ibuagatt.hornafjordur.is

Störfin hefjast 8. Júní og síðasti vinnudagur er 31. júlí

Umsóknarfrestur er til 1. júní nk. ​

Árgangi 2013 býðst vinna frá 09:00-12:00

Árgangi 2010-2012 býðst vinna frá 09:12:00 og/ eða 13:00-16:00

Eldri árgöngum bjóðast störf í flokkstjórn, gæslu, ýmis sérverkefni og fleira.

Vinnuskólinn er oft fyrsta skref ungs fólks á vinnumarkaði og verður mikil áhersla lögð á faglega flokksstjórn, vönduð vinnubrögð, góð samskipti og jákvæða menningu.

Auk þess er lögð áhersla á að nemendur öðlist reynslu og þekkingu sem nýtist þeim til framtíðar og að þau fræðist um vinnumarkaðinn.

Fyrirhuguð eru ýmiskonar námskeið og hópefli til að efla alla í starfi og lífi td. varðandi öryggi, heilsu, samskipti, samvinnu, leiðtogafærni og fleira.

Verkefni í vinnuskóla og sumarstörfum eru fjölbreytt og aðaláherslan er á fegrun bæjarins. Hægt er að fylgjast með á Facebook síðunni Vinnuskóli Hornafjarðar.

Allar frekari upplýsingar gefur Ágústa Margrét Arnardóttir verkefnastjóri á fræðslu- og frístundasviðs í síma 470 8028 eða í gegnum agustam@hornafjordur.is

Við hvetjum öll sem hafa aldur til og áhuga á að sækja um í vinnuskólanum.