4.12.2017 : Rafmagnslaust á Mýrum, Suðursveit og Öræfum á morgun

Rafmagnslaust verður á Mýrum, Suðursveit og Öræfum  þriðjudaginn 5. desember frá kl 13:00 til kl 16:00 vegna viðgerða á þremur stöðum á háspennulínum.

4.12.2017 : Jóla og afmælissamvera félags eldri Hornfirðinga

Félag eldri hornfirðinga heldur jóla- og afmælissamveru félagsins á Hótel Höfn laugardaginn 9. desember kl. 14:00.

30.11.2017 : Leikskólinn Sjónarhóll

Í ágúst sl. hóf verktakafyrirtækið Karlsbrekka ehf. byggingu nýs leikskóla við Kirkjubraut. Leikskólinn hefur hlotið nafnið Sjónarhóll og voru þrjú hönnunarfyrirtæki í samstarfi um hönnun hans; Arkþing ehf., Mannvit verkfræðistofa og Landhönnun slf.

30.11.2017 : Hver er framtíð Suðurlands sem ferðaþjónustusvæði

Hvar viljum við vera eftir þrjú ár? Hvaða hlutverk viljum við að ferðaþjónustan spili á áfangastað?

30.11.2017 : Jólahátíð

Efnt verður til jólahátíðar Sveitarfélagsins Hornafjarðar 
laugardaginn 2. desember. Hátíðin fer fram í Nýheimum. 
Hátíðardagskráin hefst kl 13:00 og stendur til 17:00 og lýkur með tendrun jólaljósa á bæjarjólatrénu.

27.11.2017 : Íbúafundur Holti á Mýrum

Íbúafundur um fjárhagsáætlun og sameiningamál verður haldinn að Holti á Mýrum 28. nóvember.

24.11.2017 : Íbúafundur um almannavarnir í Öræfum

Íbúafundur um almannavarnir í Öræfum sem fresta þurfti vegna veðurs verður haldinn mánudaginn 27. nóvember kl. 20:00 í Hofgarði.

24.11.2017 : Rafmagnsbilun í Suðursveit og Öræfum

Rafmagnsbilun er í Suðursveit og Öræfum. Línuslit og brunninn staur. Unnið er að viðgerð og vonast er að rafmagn komi á með morgninum.

23.11.2017 : Íbúafundi frestað vegna veðurs

Íbúafundur um fjárhagsáætlun 2018 og sameiningarmál sem vera átt í kvöld í Holti á Mýrum er frestað vegna veðurs.

Síða 2 af 14