Atvinnuleysi í Sveitarfélaginu Hornafirði á árunum 2023–2026
Nejra Mesetovic, byggða- og nýsköpunarfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar, hefur tekið saman nýtt yfirlit yfir þróun atvinnuleysis í sveitarfélaginu frá janúar 2023 til mars 2026.
Gögnin sýna að atvinnuleysi í Sveitarfélaginu Hornafirði er að stórum hluta árstíðabundið. Sveiflurnar tengjast fyrst og fremst ferðaþjónustu, sérstaklega gistiþjónustu, þar sem atvinnuleysi hækkar yfir vetrarmánuði en lækkar yfir sumarið þegar eftirspurn eftir vinnuafli eykst. Í mars 2026 voru 68 einstaklingar skráðir atvinnulausir í sveitarfélaginu, þar af 35 í póstnúmeri 780, 27 í póstnúmeri 781 og 6 í póstnúmeri 785.
Helstu niðurstöður samantektarinnar eru:
Atvinnuleysi er mjög árstíðabundið
Atvinnuleysi hækkar að jafnaði yfir vetrarmánuði og lækkar yfir sumarið. Þetta
mynstur endurtekur sig á tímabilinu og bendir til þess að atvinnuleysi sé að
stórum hluta tengt árstíðasveiflum í ferðaþjónustu.
Ferðaþjónustan hefur mest áhrif á heildarsveifluna
Atvinnuleysi í ferðaþjónustu sveiflast mest milli árstíða. Gistiþjónusta ber
stærstan hluta þessara sveiflna en veitingaþjónusta og önnur ferðaþjónusta
fylgja sama mynstri, þó með minni sveiflum.
Sjávarútvegur sýnir mikinn stöðugleika
Atvinnuleysi í sjávarútvegi er mjög lágt og stöðugt yfir tímabilið. Gögnin sýna
litlar sveiflur og veik tengsl við vertíðir, sem bendir til þess að greinin sé
stöðug undirstaða vinnumarkaðarins í sveitarfélaginu.
Langtímaatvinnuleysi virðist ekki útbreitt vandamál
Greining á lengd atvinnuleysis sýnir að stærsti hluti atvinnuleysis er til
skamms tíma, eða 0–6 mánuðir. Lengra atvinnuleysi, 6–12 mánuðir og 12 mánuðir
eða lengur, er mun minna og stöðugra yfir tímabilið.
Atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara fylgir
árstíðasveiflum skýrt
Hjá erlendum ríkisborgurum er atvinnuleysi að mestu skammtímaatvinnuleysi og
sveiflast greinilega eftir árstíðum. Þetta bendir til þess að margir fari
tímabundið inn og út af vinnumarkaði frekar en að festast í
langtímaatvinnuleysi.
Aðrar atvinnugreinar mynda stöðugri grunn
Atvinnuleysi í öðrum atvinnugreinum en ferðaþjónustu og sjávarútvegi er
tiltölulega stöðugt yfir tímabilið. Sveiflurnar eru minni og virðast síður
tengjast árstíðum en atvinnuleysi í ferðaþjónustu.
Samantektin er liður í því að efla yfirsýn yfir stöðu atvinnulífsins í Sveitarfélaginu Hornafirði. Með reglulegri greiningu á atvinnuleysi, atvinnugreinum og staðbundnum mynstrum skapast betri grunnur fyrir samtal, ákvarðanatöku og stefnumótun til framtíðar.
Hér er samantektin

