Norðurljósablús 6.–7. mars!
Norðurljósablús-hátíðin hefur fest sig í sessi sem árlegur tónlistarviðburður á Höfn þar sem blús og rokk fá að njóta sín í allri sinni breidd. Hátíðin hefur verið haldin reglulega og dregið að sér bæði heimafólk og gesti sem vilja upplifa lifandi og skemmtilega tónlist og eiga góða stund með sínu fólki.
Einn mikilvægur
þáttur hátíðarinnar er sambland aðkomusveita og hljómsveita sem starfa í
sveitarfélaginu. Það skiptir miklu máli fyrir bönd sem starfa hér að geta tekið
þátt í hátíðinni og deilt sviði með öflugasta tónlistarfólki landsins, bæði til
að efla metnað og hvatningu og ekki síður til að mynda dýrmæt tengsl.
Dagskráin í ár er
ekki af verri endanum! Eyþór Ingi og Óskar Logi sameina krafta sína, en báðir
eru þeir landsþekktir tónlistarmenn sem hafa unnið marga eftirminnilega sigra á
sínum tónlistarferli.
Blússveitin
Refill, skipuð Sigurgeiri Sigmundssyni gítarleikara (Start, Gildran, Drísill
o.fl.), Sigurði Sigurðssyni (Ebenezer) og fleiri úrvals tónlistarmönnum, mun
spila á hátíðinni. Sigurður er einn fremsti blússöngvari landsins og
framúrskarandi munnhörpuleikari.
Við þekkjum öll
Þorkel og Björgu sem hafa verið dugleg að spila fyrir Hornfirðinga, auk þess að
halda Blúsbrælutónleika reglulega á Hafinu. Það verður spennandi að sjá þau
koma fram á hátíðinni.
Svo er það endurkoma hornfirsku hljómsveitarinnar The Cha Cha Cha's sem skipuð er þeim Júlíusi, Friðriki, Birgi og Aroni. The Cha Cha Cha's hafa spilað þrisvar áður á blúshátíðinni og munu pottþétt rífa þakið af húsinu.

Hátt upp til hlíða er hljómsveit frá Egilsstöðum en meðlimir hennar eru Máni Vals, Steini, Árni Páls, Frikki (okkar), Elli Rokk, Hafþór Valur og Dóri Pella og Charles Ross. Hátt upp til hlíða spilar írska tónlist sem á eftir að vera hin mesta skemmtun.

Einnig mun GG Blús stíga á svið, rokkaður blúsdúett skipaður Guðmundi Jónssyni á gítar og söng og Guðmundi Gunnlaugssyni á trommur og söng. Þessir nafnar hafa marga fjöruna sopið í íslensku tónlistarlífi og starfað í hljómsveitum á borð við Sálinni hans Jóns míns, Sixties, Nykur, Kentár og fleiri sveitum.
Það er því um að
gera að taka dagana 6.–7. mars frá og láta sig ekki vanta.
Að lokum er
mikilvægt að nefna þá bakhjarla sem styðja við hátíðina: Sveitarfélagið
Hornafjörður, Pakkhúsið, Hótel Höfn, Skinney-Þinganes,
Samtök sunnlenskra
sveitarfélaga og Hafið.

