Innritun nemenda í 1. bekk

8.5.2025

Innritun barna sem fædd eru árið 2019 og eiga að hefja skólagöngu haustið 2025 fer fram í Grunnskóla Hornafjarðar 12.- 26. maí 2025. Foreldrar eru beðnir um fylla út tvö innritunarblöð og skila í skólann.  Æskilegt er að senda innritunarblöðin í tölvupósti á elsag@hornafjordur.is en það má líka koma með þau í Hafnarskóla

Verðandi nemendur í 1. bekk og foreldrar þeirra fá bréf í sumar með upplýsingum um skólastarfið en skóli verður settur 21. og 22. ágúst .