• Hornafjordur_sumar23-9293-resize

Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir Gömlubúð til leigu

9.2.2024

Gamlabúð er vel staðsett við hið líflega hafnarsvæði á Höfn og er eitt sögufrægasta hús Hornafjarðar. 

Húsið var upphaflega byggt árið 1864 við Papós í Lóni en síðar flutt til Hafnar. Lengst af var rekin verslun í húsinu, en síðar byggðasafn, Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs og nú síðast upplýsingamiðstöð ferðamanna. Húsið býður upp á mikla möguleika og hentar vel undir fjölbreyttan rekstur. Það er á þremur hæðum og er heildarstærð þess um 300 fm. Lyfta er í húsinu og gott aðgengi fyrir alla.

Leigutaka verður heimilt að nýta húsnæðið á þann hátt sem samið verður um en æskilegt er að í umsókn sé gert ráð fyrir upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Öll breyting á húsnæðinu er háð samþykki bæjarráðs og skal vera á kostnað og ábyrgð leigutaka.

Með umsókn skal fylgja greinargerð um fyrirhugaða starfsemi og rekstrarfyrirkomulag í húsinu. Skilmálar sem einkum verður litið til við ákvörðun um val á leigutaka eru eftirfarandi:

  • Aukið aðdráttarafl Hafnar sem áfangastaðar
  • Rekstur upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn
  • Áformaður leigutími
  • Endurgjald fyrir leigu húsnæðis
  • Opnunartími
  • Reynsla og þekking viðkomandi aðila af rekstri
  • Nýting hússins með tilliti til sérstöðu þess

Athugið að vægi skilmálanna er óháð röðun þeirra.

Áhugasamir aðilar vinsamlegast skilið inn umsókn á netfangið eyrunh@hornafjordur.is eigi síðar en kl. 23:59 þann 1. mars 2024. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er á grunni greinargerðar eða hafna öllum.

Allar nánari upplýsingar veitir Eyrún Helga Ævarsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í síma 470-8050 eða tölvupósti eyrunh@hornafjordur.is

Bæjarráð Hornafjarðar