Tæming rotþróa

6.4.2021

Tæming rotþróa hefst í Lóni dagana 12.-13. apríl nk. 

Samið hefur verið við Hreinsitækni ehf. um skipulagða tæmingu á rotþróm í sveitarfélaginu, tæmingar hefjast í Lóni dagana 12. - 13. apríl n.k. Svo hægt sé að tæma rotþrær er mikilvægt að aðgengi að þeim sé gott. 

Ef hlið eru læst, aðgengi lélegt eða rotþrærnar ill sjáanlegar þá þarf að gera ráðstafanir og hafa samband við Ágúst hjá Hreinsitækni í síma 863-1508.

Þá er fyrirtækjum í sveitarfélaginu bent á að hafa samband við Hreinsitækni ehf. vegna tæminga, hvort sem um ræðir hreinsistöðvar, rotþrær eða holræsahreinsun

Hreinsitækni ehf. notar svokallað KSA kerfi til tæmingar á rotþróm með úrvötnun á seyru. Kerfið byggist á því að innihaldi rotþróa er dælt í bílinn, þar sem seyran er aðskilin frá vatninu og því dælt aftur í þrærnar. Með þessari aðgerð er búið að minnka til muna það efnismagn sem keyra þarf í burtu frá hverjum stað, ásamt því að rotnunargerillinn helst lifandi í rotþrónni. Seyruna má síðan annað hvort urða eða blanda hana kalki og nýta sem áburð. Þessi nýja tækni er fljótleg og með henni má skapa vistvæn verðmæti sem er hennar helsti kostur.